Já þið lásuð rétt! Við eigum einungis eftir að vera með 3 bingókvöld niðrí Vinabæ.
Búið er að ganga frá kaupum á húsnæði Vinabæjar og þurfum við því miður að skella í lás eftir 28. febrúar.
Ef þú ert ein/einn af þeim sem varst alltaf á leiðinni og ætlaðir alltaf að prufa þá er tækifærið núna næstu kvöld.
Húsið opnar 17:30
Sala bingóblaða og veitinga hefst 18:30
Leikurinn hefst 19:15
Leik lýkur 23:00
Að sjálfsögðu er hægt að koma og fara þegar hverjum og einum hentar á þessum tíma 🙂
Hlökkum til að sjá sem flesta, með grímu! 🙂
Bestu kveðjur,
Starfsfólk Vinabæjar